UMFJÖLLUN UM DISKINN SÝN AF ELDI
ÚRDRÁTTUR ÚR GREININNI "NÝ RÖDD"
..."Ljóðin sem lög Salbjargar eru samin við eru úr ljóðabókinni Aldahvörf eftir Eðvarð T. Jónsson sem mörgum er kunnur sem fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu. Þetta eru kraftmikil og innihaldsrík ljóð sem fjalla um sögulega atburði sem gerðust í Íran á 19. öld"...
..."Athygli vekur píanórödd laganna. Auðheyrilegt er að Salbjörg er píanóleikari sem þekkir hljóðfæri sitt. Píanóröddin en oft hugvitsamlega útfærð og í mörgum laganna litrík og snjöll. Þetta má glöggt heyra í lögum eins og Söngur fanganna, Hin aldna dýrð og Í hafdjúp orðsins. Ekki spillir fyrir ágætur píanómeðleikur tónskáldsins sjálfs.
Þau Bergþór Pálsson og Signý Sæmundsdóttir flytja lögin af sannfæringu og innileika. Samsöngur þeirra í Brúðkaupinu á torginu er prýðilegur. Björt baritonrödd Bergþórs er falleg, tónmyndun hans er ávallt með ágætum og túlkun smekkvís. Hlustið t. d. á Útlagann sem er sunginn með tilþrifum og dramatík"...
Úr tónlistargagnrýni eftir Valdemar Pálsson